Donnerstag, 28. März 2024

3. 1. Friður og gleði - Frieden und Freude (26 - 46)

26) Hvort sem þessi umsát hefir verið ímyndun ein eða ekki, var hún honum hið mesta áhyggjuefni og gerði hann lengi sinnulausan um margt það, sem honum bar að hafa auga á.
Ob diese Bedrohung Einbildung gewesen war oder nicht, sie war für ihn Anlaß zu größter Sorge, und machte ihn teilnahmslos für vieles, auf das er ein Auge hätte haben sollen.

27) En allar þessar öldur harma og hrellinga brotnuðu fyrir bæ utan á Stóruborg.
Und all dieser alte Groll und die Schrecken brachen überall hervor – außer in Stóraborg.

28) Þar bjó friður og gleði, friður og gleði ástarinnar.
Dort herrschten Friede und Freude – der Friede und die Freude der Liebe.

29) Tvö yndisleg sveinbörn prýddu og glöddu heimilið.
Zwei entzückende kleine Jungen zierten das Heim.

30) Annar sveinninn var farinn að ganga.
Der eine Junge war konnte schon laufen.

31) Hinn var enn þá í reifum.
Der andere lag noch in der Wiege.

32) Sambúð þeirra Hjalta og Önnu var fyrir löngu hætt að hneyksla nokkurn mann á heimilinu.
Das Zusammenleben von Hjalti und Anna schockierte längst niemanden mehr im Haus.

33) Allir skildu það vel, að Anna gat ekki fengið samþykki Páls bróður síns til að giftast pilti eins og Hjalta, svo langt fyrir neðan hana að auði og ættgöfgi. Alle wußten nur zu gut, daß Anna keine Erlaubnis von ihrem Bruder Páll bekommen würde, einen Jungen wie Hjalti zu heiraten, der so tief unter ihr stand, was Reichtum und Herkunft betraf.

34) Henni kom ekki til hugar að leita slíks samþykkis.
Ihr kam auch gar nicht der Gedanke, um eine solche Erlaubnis zu fragen.

35) En án þess gat hún ekki fengið nokkurn prest á landinu til þess að gefa sig og Hjalta saman í hjónaband.
Und deshalb hatte sie keinen Geistlichen im Land dazu bewegen können, sie und Hjalti zu trauen.

36) Slíkt hjónaband var ólöglegt, og þá eins gott að vera alveg án þess.
Ein solches Ehebündnis war ungesetzlich und deshalb so gut wie gar keins.

37) En djarflegt var tiltæki hennar, það játuðu allir, og henni einni líkt.
Und ihr Handeln war bei aller Kuriosität mutig – das bejahten alle, und es sah ihr ähnlich.

38) Ekki var heldur verið að fara með þetta í neina launkofa.
Als einfache Kätnerin wäre sie damit nicht durchgekommen.

39) Heimilislífið hafði stórbatnað.
Die Stimmung im Haus hatte sich sehr verbessert.

40) Húsmóðirin var síglöð og ánægð og góð við alla.
Die Hausherrin war immer guter Laune und freundlich und gütig zu allen.

41) Hjúin og landsetarnir virtu hana og elskuðu miklu meira en áður.
Die Diener und Kätner schätzten und liebten sie viel mehr als früher.

42) Ástin gerði hana glaða og sæla, og síðan börnin fæddust, var sífellt sólskin og yndi í kringum hana.
Die Liebe machte sie froh und glücklich, und seit die Kinder geboren waren, war immer Sonnenschein und Freude um sie herum.

43) Hjalti var líka orðinn allur annar maður.
Hjalti war ein ganz anderer Mann geworden.

44) Hann hafði vaxið og þroskast svo fljótt, að nærri því sætti undrum.
Er war so schnell gewachsen und herangereift, daß es fast ein Wunder war.

45) Hann var enn ekki nema um tvítugt, en samt leit út fyrir, að hann hefði náð fullum líkamsþroska.
Er war noch nicht zwanzig, und doch sah es danach aus, daß er seine volle körperliche Reife erreicht hatte.

46) Og í dagfari var hann þroskaður langt yfir aldur fram.
Und im Verhalten war er weit über sein Alter hinaus reif.

3. 1. Friður og gleði - Frieden und Freude (21 - 25)

21) Hann hafði verið einn af skæðustu andstæðingum Jóns biskups, og margir héldu, að Jón biskup hefði átt við hann, er hann talaði hann hefði verið heili kotungssonurinn, en Daði i Snóksdal sá hálfi.
Er war einer der gefährlichsten Gegner von Bischof Jón gewesen und viele glaubten, daß Bischof Jón ihm ebenbürtig gewesen war, er hann talaði hann hefði verið heili kotungssonurinn, en Daði i Snóksdal sá hálfi.

22) Og hann hafði verið kvaddur til ráða, er þeir feðgar sátu þar í haldi.
Und er war kvaddur til ráða in Skálholt gewesen, als Vater und Sohn dort in Haft saßen.

23) Að ráðum hans hefði ekki verið fylgt, vissu Norðlendingar auðvitað ekkert um.
Daß sein Rat nicht befolgt worden war, davon wußten die Nordisländer natürlich nichts.

24) Ekki var því ástæðulaust að halda, að um hann væri setið, ekki síður en aðra.
Es war nicht unbegründet, zu glauben, daß er bald an die Macht kommen würde.

25) Og sýslumaður var mjög var um sig.
Und der sýslumaður war sehr vorsichtig.

Dienstag, 26. März 2024

3. 1. Friður og gleði - Frieden und Freude (17 - 20)

17) Það var sagt og því trúað, að norðlenskir flugumenn væru dreifðir um allt Suðurland og sætu um hvern mann, sem verið hefði í sökum við Jón biskup eða ráðum við aftöku hans.
Es wurde gesagt und geglaubt, daß Spione aus dem Norden im Süden unterwegs seien und jeden Mann, der eine Mitschuld an der Hinrichtung von Bischof Jón hatte, zur Verantwortung ziehen würden.

18) Enginn vissi, hvar þeir voru.
Keiner wußte, wo sie waren.

19) Enginn vissi, hvar næsta vígið yrði unnið.
Keiner wußte, wo die nächste Bluttat begangen werden würde.

20) Sögur gengu um það, að grunsamir menn, sem enginn vissi nein deili á, hefðu verið á sveimi kringum Hlíðarenda, þar sem sýslumaður Páll Vigfússon, bróðir Önnu, bjó.
Es waren Gerüchte in Umlauf, daß verdächtige Männer, von denen keiner etwas Genaues wußte, sich in Hlíðarendi herumgetrieben hätten, genau dort, wo der sýslumaður Páll Vigfússon, Annas Bruder, wohnte.

Montag, 25. März 2024

3. 1. Friður og gleði - Frieden und Freude (11 - 16)

11) Leynistraumar haturs og hefnigirni læddust um allt þjóðlífið.
Haß und Rachsicht bestimmten das ganze Leben.

12) Enginn vissi, hvenær þeir kynnu að brjótast upp á yfirborðið og lita landið blóði.
Niemand wußte, wann sie an die Oberfläche brechen und das Land bluten lassen würden.

13) Suður á nesjum voru orðin mikil tíðindi.
Südlich der Landzunge gab es große Neuigkeiten.

14) Norðlenskir vermenn höfðu farið að umboðsmanni konungsvaldsins og drepið hann.
Die nordisländischen Fischer waren zum Statthalter des Königs gegangen und hatten ihn umgebracht.

15) Fleiri víg voru unnin, og öll stefndu þau að því að hefna Jóns biskups og sona hans.
Mehrere Bluttaten waren begangen worden, und alle strebten an, Bischof Jón und seine Söhne zu rächen.

16) Sunnanlands var fólk gripið af ótta og skelfingu.
Im Süden des Landes waren die Leute von Angst und Entsetzen ergriffen.

3. 1. Friður og gleði - Frieden und Freude (6 - 10)

6) Danskir leigudátar stóðu vopnaðir á alþingi árið eftir og skipuðu málum manna.
Ein Jahr später standen dänische Söldner bewaffnet auf dem Althing und hetzten die Männer auf.

7) Fólkið kveið grimmd og grályndi konungsvaldsins, og það engan veginn að ástæðulausu.
Das Volk hatte Angst vor der Grausamkeit und Unehrlichkeit der Königsherrschaft und das keineswegs grundlos.

8) En þó var annað, sem margir kviðu enn meira.
Und doch gab es noch etwas, das viele noch mehr fürchteten.

9) Það var stjórnleysið og agaleysið í landinu.
Es herrschten Anarchie und Disziplinlosigkeit im Land.

10) Það var fullur fjandskapur milli Norðlendinga og Sunnlendinga, og að hinu leytinu var fullur fjandskapur milli páfatrúarmanna og Lútherstrúarmanna.
Es herrschte Feindschaft zwischen Nordisländern und Südisländern, und dazu kam noch die Feindschaft zwischen Papstanhängern und Lutheranern.

Sonntag, 24. März 2024

3. 1. Friður og gleði - Frieden und Freude (1-5)

1) Árum saman hafði Ísland allt skolfið af hrolli og kvíða.
Das ganze Jahr über hatten in Island Angst und Schrecken geherrscht.

2) Árum saman hafði ófriður og úlfúð geisað um land allt.
Im gleichen Jahr hatten Unfrieden und Feindseligkeit geherrscht.

3) Aldrei hafði verið jafnstyrjaldasamt síðan á Sturlungaöld.
Seit der Sturlungen-Zeit hatte es kein Gleichgewicht mehr gegeben.

4) Og allt hafði endað með skelfingu.
Und alles hatte mit Schrecken geendet.

5) Mestu og bestu menn landsins, Jón biskup Arason og synir hans, voru lagðir á höggstokkinn í Skálholti.
Die besten Männer des Landes, Bischof Jón Arason und seine Söhne (1), wurden in Skálholt geköpft.

(1) Anmerkung der Übersetzerin:
Der Zölibat wurde in Island nur insofern eingehalten, als Geistliche ihre Partnerinnen nicht heirateten. Jón Arason hatte mindestens neun Kinder mit seiner langjährigen Geliebten Helga Sigurðardóttir, von denen sechs das Erwachsenenalter erreichten: die Söhne Ari, Björn, Magnús und Sigurður und die Töchter Þórunn und Helga. Mit ihm hingerichtet wurden die Söhne Ari und Björn.

2. 3. Hallur grámunkur – Hallur, ein Franziskanermönch (153 - 159)

153) "Það er best þú eigir ólina, sem ég lamdi þig með í gærkveldi," mælti hún.
„Es ist am besten, du hast den Riemen, mit dem ich dich gestern abend geschlagen habe“, sagte sie.

154) "Vertu skriftafaðir minn framvegis, ef þú vilt.
Werde fortan mein Beichtvater, wenn du willst.

155) Hér er ekki um marga að velja.
Hier gibt es keine große Auswahl.

156) En ef okkur kemur illa saman, þá veistu, hvað þú færð."
Und wenn wir schlecht miteinander auskommen, weißt du, was dir passiert.“

157) Síðan henti hún í hann kálfskinnsstranga með innsiglum og reið á stað.
Dann gab sie ihm den Kalbslederriemen mit dem Siegel und ritt davon.

158) Munkurinn varð heldur glaður, þegar hann rakti sundur strangann.
Der Mönch wurde froh, als er den Riemen löste.

159) Það var gjafabréf fyrir sex hundruðum í jörð.
Es war eine Schenkungsurkunde über sechshundert (???) Land.

6. 1. Ofsóttar ástir – Verfolgte Liebende (101 - 110)

101) Hann spurði eftir honum á hverju manntalsþingi, sem hann hélt undir fjöllunum, en fékk aldrei neitt svar. 102) Hann sendi njósnarmenn ...