Donnerstag, 16. November 2023

2. 2. Fóstursonurinn – Der Ziehsohn (84 - 86)

84) Það var sem gengi hún vakandi í sælum draumum og brosti að hugsunum sínum.
Sie ging wie im Traum umher und lächelte vor sich hin.

85) Og stundum var hún, búkonan mikla, með hugann langt í burtu frá heimilisstörfunum.
Und manchmal war sie, die große Gutsbesitzerin, mitt ihren Gedanken weit weg von ihrer häuslichen Arbeit.

86) - Hjalti baðaði sig í sólskini þeirrar náðar og velþóknunar, sem húsmóðirin hafði á honum.
Hjalti sonnte sich in der Gnade und dem Wohlwollen, die die Hausherrin ihm zeigte.

Dienstag, 14. November 2023

2. 2. Fóstursonurinn – Der Ziehsohn (80 - 83)

80) Það var kominn yfir hana blíðleiki, einhver einhver ungfreyju-yndisþokki, langtum meir en áður hafði verið.
Etwas war über sie gekommen, etwas Jungfräulich-Anmutiges, viel mehr, als je zuvor da gewesen war.

81) Hún var glaðlegri og góðlegri í viðmóti við alla og ekki eins ströng við hjúin og hún hafði verið.
Sie war fröhlich und guter Laune im Umgang mit allen und nicht mehr so streng mit ihren Untergebenen, wie sie es früher gewesen war.

82) Þau þekktu hana varla fyrir sömu manneskju.
Sie erkannten sie kaum wieder.

83) Þeim leið betur undir stjórn hennar, og heimilisbragurinn varð hlýlegri.
Es ging ihnen besser unter ihrer Leitung, und die Atmosphäre im Haus wurde freundlicher.

Montag, 13. November 2023

2. 2. Fóstursonurinn – Der Ziehsohn (73 - 79)

73) En þeir, sem komu sér vel við hana, áttu hana jafnan að, og af þeim leit hún aldrei, ef í nauðir rak fyrir þeim.
Aber von denen, mit denen sie gut auskam, wandte sie sich nie ab, auch nicht, wenn sie in Not gerieten.

74) Og þeir voru fleiri en hinir.
Und die waren in der Überzahl.

75) Öll hjúin virtu hana og flest elskuðu hana einnig meira en svo, að þau vildu gera henni á móti.
Alle ihre Untergebenen achteten sie, und die meisten liebten sie außerdem so sehr, daß sie sich ihr nicht widersetzen wollten.

76) En hvort sem þau elskuðu hana eða ekki, höfðu þau beyg af henni og hlýddu henni möglunarlaust.
Und ob sie sie liebten oder nicht, sie ordneten sich ihr unter und gehorchten ihr klaglos.

77) Þannig hafði húsmóðirin á Stóruborg verið allt til þess, er hér segir frá.
So war die Hausherrin von Stóra-Borg bis zu der Geschichte, die hier erzählt wird.

78) En eftir að hún tók Hjalta að sér, var sem nokkuð skipti um.
Aber nachdem sie Hjalti zu sich genommen hatte, war sie wie ausgewechselt.

79) Það var sem hefði hún yngst um tíu ár.
Es war, als wäre sie zehn Jahre jünger geworden.

Samstag, 11. November 2023

2. 2. Fóstursonurinn – Der Ziehsohn (64 - 72)

64) Hún var helst til lík feðrum sínum að andlitsfalli til þess að geta kallast fríð, en þeir voru stórgerðir og svipmiklir.
Sie sah ihrem Vater zu ähnlich, als daß ihr Gesicht schön genannt werden konnte, doch es war sehr ausdrucksstark.

65) Holdug var hún nokkuð, en þó björt yfirlitum, munnfríð og nokkuð varaþykk, með hátt enni og miklar augnabrýr.
Sie war kräftig und ein heller Typ, hatte einen schönen Mund mit vollen Lippen und breite Augenbrauen.

66) Augu hafði hún skarpleg og skýrleg.
Sie hatte scharfe und klare Augen.

67) Svipurinn var í harðara lagi, markaður af einbeittum vilja og þrunginn af sterkum ástríðum.
Ihre Miene verriet einen starken Willen und heftige Leidenschaft.

68) Samt gat þar einnig búið köld hæðni, beisk glettni eða blíðleg gamansemi.
Dazu kamen kalter Hohn, bissige Schalkhaftigkeit und milde Witzigkeit.

69) En sjálfstraust og fullan myndugleika skorti þar aldrei.
Und auch an Selbstvertrauen und Autorität fehlte es ihr nicht.

70) Ströng húsmóðir var hún og stýrði heimili sínu með harðri hendi.
Sie war eine strenge Hausherrin und regierte ihr Heim mit harter Hand.

71) Illa fór fyrir þeim, sem risu á móti boðum hennar eða banni eða fóru í kringum hana og voru henni ótrúir.
Schlecht erging es denen, die sich ihren Befehlen widersetzten oder ihre Verbote umgingen und ihr untreu waren.

72) Þess hefndi hún svo, að menn rak minni til á eftir.
Das rächte sie so, daß man es nie vergaß.

Montag, 6. November 2023

2. 2. Fóstursonurinn – Der Ziehsohn (60 - 63)

60) Það var sem væri henni ekki eins uppsigað við neitt sem það, er talið var, að stæði henni jafnfætis og væri henni samboðið.
Anscheinend konnte sie sich nicht vorstellen, daß jemand ihr ebenbürtig war.

61) Því var almennt trúað, að hún mundi aldrei giftast.
Man glaubte allgemein, daß sie nie heiraten würde.

62) Anna Vigfúsdóttir var kona meðalhá vexti og fagurlega vaxin.
Anna Vigfúsdóttir war eine mittelgroße Frau und schön gewachsen.

63) Fríð sýnum var hún eiginlega ekki, en bauð þó hinn besta þokka.
Eine Schönheit war sie eigentlich nicht, aber sie hatte ein einnehmendes Wesen.

Sonntag, 5. November 2023

2. 2. Fóstursonurinn – Der Ziehsohn (55 - 59)

55) Og jafnan hafði hún haft mætur á Önnu og litið til með henni, meðan hennar naut við.
Und sie hatte immer viel von Anna gehalten und sich ihr anvertraut, wenn sie anwesend war.

56) Síðan Anna fór að búa, hafði henni sjálfri græðst allvel fé, svo að nú átti hún miklu fleiri jarðir en Stóruborg.
Seit Anna ausgezogen war, hatte sie selbst viel Geld verdient, so daß sie nun viel mehr Land hatte als Stóraborg.

57) En uppteknum hætti hafði hún haldið til þessa og hafnað öllum biðlum.
Sie hatte sich bisher nicht gebessert und alle Anträge abgelehnt.

58) Mikillæti hennar hafði farið mjög vaxandi síðan fóstra hennar og föðursystir dó.
Ihr Hochmut war sehr gewachsen, seit ihre Pflegemutter und Tante gestorben war.

59) Hún svaraði mikilsvirtum mönnum, sem leituðu ráðahags við hana, með meiri kulda og hæðni en áður.
Sie antwortete bedeutenden Männern, die ihr Heiratsanträge machten, mit noch mehr Kälte und Spott als je zuvor.

Samstag, 4. November 2023

2. 2. Fóstursonurinn – Der Ziehsohn (49 - 54)

49) Og ekki hafði Hólmfríður, föðursystir Önnu, varið því illa, sem hún hélt eftir af fénu.
???


50) Fremur hafði það aukist en minnkað í höndum hennar.
In ihren Händen war das Vermögen eher gewachsen, als weniger zu werden.

51) Páli, bróður Önnu, hafði hún komið til manns, og var hann nú orðinn "bóndi" það er að segja: sýslumaður á Hlíðarenda, höfuðbóli föður síns, og jafnframt að sjálfsögðu höfuð ættarinnar.
Annas Bruder, Páll, war nun zum Mann geworden, und er war jetzt “Bauer” geworden, das heißt sýslumaður auf Hlíðarendi, Haupterbe seines Vaters und gleichzeitig natürlich das Oberhaupt der Familie.

52) Systur hennar hafði hún gift burtu, og Önnu hafði hún fengið Stóruborg til eignar og ábúðar, þegar hún varð myndug.
Ihre Schwester hatte sie verheiratet, und Anna hatte Stóruborg bekommen, Eigentum und Pacht, als sie mündig war.

53) Og það var ekki gömlu konunni að kenna, þótt Anna væri ógift enn þá.
Und es war nicht der alten Frau anzulasten, daß Anna damals immer noch unverheiratet war.

54) Hún hafði séð henni fyrir nægum biðlum.
Sie hatte ihr genug Anträge verschafft.

6. 1. Ofsóttar ástir – Verfolgte Liebende (140 - 149)

140) Sigvaldi blíðalogn var einn af helstu talsmönnum þeirrar skoðunar. 141) Margir voru þeirrar skoðunar, að Hjalti væri geymdur í Dal hjá...