Sonntag, 16. März 2025

5. 2. Eftirleitir - Die Suche (74 - 78)

74) Ekki þyrfti þá að spyrja að heimtunum í haust, ef hann lægi í heiðinni og legðist á féð.
Keiner brauchte zu fragen, was im Herbst passieren würde, wenn er in der Wildnis herumirrte und wilden Tieren begegnete.

75) Illur var dýrbíturinn, en verri voru þessir ólukku útilegumenn.
Übel war der Biß der Tiere, aber noch schlimmer war ein solches Unglück für einen Obdachlosen.

76) Nei, Hjalti var vafalaust dauður, annars hefði ekki húsmóðirin blessuð selt eftirlætishestinn hans.
Nein, Hjalti war sicher tot, sonst hätte die Hausmutter nicht sein Lieblingspferd verkauft.

77) Eftirlætishestinn?
Lieblingspferd?

78) Hafði hann átt reiðhest?
Hatte er ein Reitpferd gehabt?

5. 2. Eftirleitir - Die Suche (67 - 73)

67) Sumir héldu, að hann hefði komist í enska duggu; þær voru þar iðulega fram undan söndunum, og stundum fóru duggararnir í land og stálu fé; það var annars gott, að lögmaðurinn vissi það, svo að hann gæti kært þá fyrir kónginum eða látið bara hengja þá.
Einige dachten, er wäre in einem englischen Fischerboot gelandet, davon waren einige auf den Sunden unterwegs, und manchmal legten die Bootsleute an und stahlen Vieh; es war gut, daß der lögmaður davon wußte, damit er sie vor den König bringen konnte oder sie einfach aufhängen ließ.

68) Það voru bölvaðir fantar á þessum duggum.
Es waren verwünschte Grobiane in diesen Booten.

69) Höfðu þeir ekki einhvern tíma drepið mann vestur í Rifi?
Hatten sie nicht einmal einen Mann im Westen in Rif getötet?

70) Lögmann meira að segja, eða hirðstjóra, eða eitthvað því um líkt?
Angeblich sogar einen lögmaður oder hirðstjóri oder etwas in der Art?

71) Víst voru það bölvaðir fantar.
Es waren wirklich furchtbare Rohlinge.

72) Nú, það gat vel verið, að þeir hefðu tekið Hjalta vel og farið með hann heim til sín; það gat líka meira en verið, að þeir hefðu bara haft hann í beitu.
Nun, es konnte schon sein, daß sie Hjalti gefangengenommen hatten und mit ihm nach Hause gefahren waren, es konnte noch mehr sein, daß sie ihn nur gefangen hatten.

73) Sumir héldu, að Hjalti hefði lagst út; hann hefði verið svo hræddur við lögmanninn.
Einige dachten, daß Hjalti geflohen wäre, er hatte solche Angst vor dem lögmaður gehabt.

Samstag, 15. März 2025

5. 2. Eftirleitir - Die Suche (64 - 66)

64) Hann hafði svo oft leikið sér að alls konar hættum; ekkert var sennilegra en að hann hefði einhvern tíma farið sér að voða.
Er war ja immer sehr leichtsinnig gewesen; nichts war wahrscheinlich, als daß er irgendwann verunglückt war.

65) Guð vissi einn, hvar legstaður hans væri.
Gott allein wußte, wo seine Grabstätte war.

66) Og húsmóðirin væri oft ósköp dauf, eins og hún bæri harm í hljóði.
Und die Hausmutter war oft sehr gedämpft, als trüge sie ihren Kummer im stillen.

5. 2. Eftirleitir - Die Suche (57 - 63)

57) Utan undir bænum, næsta hús við bænahúsið.
Draußen unter der Stadt, direkt neben der Kapelle.

58) Lögmaður sendi undireins menn til að brjóta það upp og leita í því.
Der lögmaður schickte sofort Männer hin, um das Haus aufzubrechen und darin zu suchen.

59) Þeir komu aftur svo búnir.
Sie kamen mit leeren Händen zurück.

60) Spurningunum hélt áfram.
Und waren genauso schlau wie vorher.

61) Hvað héldu menn, að orðið hefði af Hjalta?
Was dachten die Leute, was aus Hjalti geworden war?

62) Nú, það var nú vandi á það að giska.
Nun, das gab ein munteres Rätselraten.

63) Flestir héldu, að hann væri dauður.
Die meisten glaubten, daß er tot sei.

Donnerstag, 13. März 2025

5. 2. Eftirleitir - Die Suche (46 - 56)

46) Og einmitt í sömu vikunni hafði rekið marflóétinn sel austur á Skógasandi; sumir sögðu raunar, að það hefði verið maður; enginn hafði eiginlega þorað að snerta við skrokknum, og svo hafði hann tekið út aftur…
Und in der gleichen Woche war ein von Flohkrebsen zerfressener Seehund im Osten in Skógasandur angespült worden, einige sagten, es sei ein Männchen gewesen, keiner hatte gewagt, den Körper richtig anzufassen, und so hatte man ihn wieder ins Wasser geworfen ...

47) Lögmaður hlustaði með dæmalausri þolinmæði á langan vaðal af þessu tagi, í von um, að eitthvað kynni að synda þar innan um, sem gefið gæti upplýsingar um það, sem hann var að grafast eftir.
Der lögmaður hörte sich mit endloser Geduld alle diesen Geschichten an, in der Hoffnung, etwas darin zu entdecken, das ihm Aufklärung darüber geben würde, was er suchte.

48) Hann spurði og spurði fram í það, sem fólkið sagði frá, en eftir allar spurningarnar var hann jafnnær um það, hvenær Hjalti hefði horfið af heimilinu.
Er fragte und fragte nach dem, was die Leute sagten, doch nach allen Fragen war er genauso schlau wie vorher und wußte immer noch nicht, wann Hjalti das Heim verlassen hatte.

49) Sinn miðaði það við hvern atburðinn, sem hann mundi þá best í svipinn, en helst mátti ráða af svörunum, að hann hefði horfið einhvern tíma fyrir mitt sumar.
Er redete sich ein, alles im Griff zu haben, und schloß am liebsten aus den Antworten, daß man ihn irgendwann vor Mittsommer gesehen hatte.

50) En hafði þá aldrei orðið vart við hann á Stóruborg eftir að hann hvarf?
Aber war er nie wieder auf Stóraborg gesehen worden, nachdem er verschwunden war?

51) Nei, aldrei, aldrei nokkurn tíma.
Nein, nie, nie, zu keiner Zeit.

52) Þó að jörðin hefði gleypt hann, gat hann ekki verið ósýnilegri.
Selbst wenn die Erde ihn verschluckt hätte, hätte er nicht unsichtbarer sein können.

53) Þar var meira að segja varla nokkur skapaður hlutur, sem á hann minnti, fremur en hann hefði aldrei verið til.
Es war, als hätte es ihn nie gegeben.

54) Smíðahúsið hans stóð alltaf lokað.
Sein Haus stand immer verschlossen da.

55) Smíðahúsið hans?
Sein Haus?

56) Hvar var það?
Wo war das?

Dienstag, 4. März 2025

5. 2. Eftirleitir - Die Suche (42 - 45)

42) Hjalti hafði horfið af heimilinu í tólftu viku sumars, sumir sögðu tíundu, en það var að minnsta kosti í sömu vikunni og lúðumóðirin var róin í land í Miðbælisvörum, einni eða tveimur vikum áður en hann Siggi á Sitjanda gifti sig, ja, það hafði nú eiginlega engin gifting verið, því að þau höfðu látið katólskan flökkumunksræfil gefa sig saman, lögmaðurinn hlaut nú að vita það best, hvort það væri lögmæt gifting.
Hjalti war aus seinem Zuhause verschwunden in der zwölften Woche des Sommers, einige sagten in der zehnten, aber es war zumindest in der gleichen Woche, og lúðumóðirin var róin í land í Miðbælisvörum (???), ein oder zwei Wochen, bevor Siggi á Sitjanda heiratete, ja, es war eigentlich keine Hochzeit gewesen, denn sie hatten sich von einem Bettelmönch trauen lassen, der lögmaður wußte am besten, ob diese Ehe rechtmäßig sei.

43) Svo í næstu viku þar á eftir hafði hann Egill gamli í Eyvindarhólum misst kúna sína.
Dann hatte in der nächsten Woche der alte Egill in Eyvindarhólum seine Kuh verloren.

44) Hún hafði legið dauð í haganum, bráðsnemmbær kýr, alveg dæmalaus mjólkurkýr.
Sie hatte tot auf der Wiese gelegen, bráðsnemmbær (???) Kuh, eine ganz tadellose Milchkuh.

45) Það var varla einleikið.
Es war nicht einfach.

Samstag, 15. Februar 2025

5. 2. Eftirleitir - Die Suche (38 - 41)

38) Hálfnakið og skjálfandi af hræðslu var það dregið fram fyrir lögmanninn og menn hans, alvopnaða, og spurt og spurt í þaula, til þess að reyna að flækja það og veiða.
Halbnackt und zitternd vor Angst wurden sie vor den lögmaður und dessen Männer gezerrt, die alle bis an die Zähne bewaffnet waren, und wurden ins Kreuzverhör genommen mit dem Ziel, sie zu verwirren.

39) Griðkonur fengu varla svarað fyrir gráti og ekka.
Die Dienerinnen konnten kaum antworten vor Weinen.

40) Húskarlar voru lítið eitt djarfari.
Die Diener waren nur wenig mutiger.

41) En það, sem upp úr fólkinu hafðist, var sáralítils virði.
Aber das, was man aus den Leuten herausbekam, war nicht viel wert.

6. 1. Ofsóttar ástir – Verfolgte Liebende (101 - 110)

101) Hann spurði eftir honum á hverju manntalsþingi, sem hann hélt undir fjöllunum, en fékk aldrei neitt svar. 102) Hann sendi njósnarmenn ...