Freitag, 1. Dezember 2023

2. 2. Fóstursonurinn – Der Ziehsohn (111 - 115)

111) En kæmist hún samt að því, að Hjalti hefði verið hart leikinn, var henni jafnan að mæta.
???


112) Miklu sjaldnar urðu vinnukonurnar fyrir áreitni hans.
Noch seltener wurden die Mägde Opfer seiner Aggressionen.

113) Hvort sem það var af umhyggju fyrir þeim eða honum, eða hvoru tveggja, þoldi húsmóðirin aldrei, að hann gerði sér dælt við þær.
Ob es aus Fürsorge für die Mägde oder für Hjalti oder für beide Seiten war, die Hausherrin duldete nicht, daß er freundlich zu ihnen war.

114) Hjalti sá það vel, að hann var illa liðinn á heimilinu, bæði meðal kvenna og karla.
Hjalti merkte sehr wohl, daß er zu Hause unbeliebt war, sowohl bei den Frauen als auch bei den Männern.

115) Hann vissi vel, að öfund réð þar miklu.
Er wußte sehr wohl, daß dort großer Neid herrschte.

Mittwoch, 29. November 2023

2. 2. Fóstursonurinn – Der Ziehsohn (109 - 110)

109) Hann vildi fá þá til að glíma við sig, og ef þeir vildu það ekki, flaug hann á þá og stríddi þeim og storkaði á allar lundir, þar til þeir reiddust, og jusu yfir hann skömmum eða fóru jafnvel illa með hann.
Er wollte sie dazu bringen, mit ihm zu ringen, und wenn sie das nicht wollten, ging er auf sie los ärgerte und provozierte sie in jeder Hinsicht, bis sie wütend wurden und ihn beschimpften oder genauso schlimm mit ihm verfuhren.

110) Aldrei sagði hann Önnu eftir þeim eða kærði þá fyrir henni, og virtu þeir hann meira fyrir það.
Nie sagte er Anna etwas Schlechtes über die anderen oder beklagte sich bei ihr, und dafür respektierten sie ihn etwas mehr.

Dienstag, 28. November 2023

2. 2. Fóstursonurinn – Der Ziehsohn (106 - 108)

106) Alla daga gekk hann iðjulaus eins og logi yfir akur, og þakkarvert var það, þegar vinnandi fólk mátti hafa frið fyrir honum.
Jeden Tag lief er ziellos umher, und es war ein Glück, wenn die arbeitenden Leute Ruhe vor ihm hatten.

107) En það var ekki því að heilsa.
Aber das war nicht immer so.

108) Einkum voru það vinnumennirnir, sem urðu fyrir barðinu á honum.
Besonders die Knechte fielen ihm zum Opfer.

Sonntag, 26. November 2023

2. 2. Fóstursonurinn – Der Ziehsohn (97 - 105)

97) Hann vílaði ekki fyrir sér að vaða beint út í brimið, þegar það var sem trylltast við sandana fram undan bænum, standa þar föstum fótum, óstuddur, og láta ölduhrönnina og útsogið belja um herðarnar á sér, og í fjöllunum kleif hann þar upp og ofan, sem öðrum þótti ófært.
Er schreckte nicht davor zurück, direkt in die Brandung hinauszuwaten, dort stehenzubleiben und dort ohne irgendeine Stütze stehenzubleiben, bis ihm die Wellen bis zu den Schultern reichten, und im Gebirge kletterte er bis ganz nach oben, was die anderen für unmöglich hielten.

98) Hvar sem hann fór og hvað sem hann hafðist að, hvíldu jafnan augu húsmóðurinnar á honum.
Wo er auch war und was er auch machte, immer ruhte der Blick der Hausherrin auf ihm.

99) Ætíð léku bros um andlit hennar, þegar hún sá hann gera eitthvað aðdáunarvert.
Immer lag ein Lächeln auf ihrem Gesicht, wenn sie ihn etwas Bewundernswertes tun sah.

100) Oft fölnaði hún upp, þegar hún sá hann hafa einhver glæfrabrögðin fyrir stafni, og ef hann var ekki heima við bæinn, var hún jafnan kvíðandi og áhyggjufull um hann. Oft wurde sie blaß, und wenn er nicht zu Hause in der Stadt war, bangte sie um ihn.

101) Stundum sendi hún þá mann frá verki til að sækja hann og segja honum að koma heim að bænum.
Manchmal schickte sie die Männer von der Arbeit weg, um ihn zu suchen und ihm zu sagen, daß er nach Hause kommen sollte.

102) Það eina, sem Hjalti hafði af ófrelsi að segja, var, að húsmóðir hans mátti aldrei til lengdar af honum sjá.
Das einzige, was Hjalti über Unfreiheit sagen konnte, war, daß seine Hausherrin nie genug davon bekam, ihn zu sehen.

103) Hún var hrædd um, að ofdirfska hans kynni að verða honum að voða.
Sie hatte Angst, daß ihm seine Tollkühnheit zum Verhängnis werden könnte.

104) En heimilisfólkinu varð þetta stóra eftirlætisbarn hrein og bein plága.
Aber für die Leute zu Hause wurde dieses große Lieblingskind regelrecht zur Plage.

105) Við taumlaust frelsi varð ofmetnaður hans einnig taumlaus.
Bei der zügellosen Freiheit wurde seine Arroganz ebenso zügellos.

Donnerstag, 23. November 2023

2. 2. Fóstursonurinn – Der Ziehsohn (92 - 96)

92) Hann stökk stangarlaust yfir hest á jafnsléttu, og hann hljóp yfir tvo hesta samsíða, ef mishæð var honum til stuðnings.
Er sprang ohne Stab über ein Pferd auf der Ebene, und er lief über zwei Pferde nebeneinander, wenn mishæð var honum til stuðnings (???).

93) Hann hóf tvævett tryppi á herðar sér og bar það á háhesti.
Er fing ein zweijähriges Pferd und trug es auf den Schultern.

94) Hann lagðist til sunds í hyljunum í ánum og æfði það svo, að hann varð allra manna best syndur.
Er verlegte sich aufs Schwimmen und übte so eifrig, daß er der beste Schwimmer von allen wurde.

95) Og hann varð skjótur á fæti, svo að enginn hestur tók hann, og klettamaður með afbrigðum.
Und er wurde so gut zu Fuß, so daß kein Pferd ihn einholen konnte / so daß er kein Pferd nahm, und klettamaður með afbrigðum.

96) Allt, sem hann langaði til, mátti hann iðka, og mest laut það að íþróttum og líkamsæfingum, enda varð hann brátt fríður og fagurlimaður, sterkur og stæltur og ofurhugi hinn mesti.
Alles, was er wollte, durfte er machen, und das waren meistens Sport und Leibesübungen, wodurch er ein sehr schöner Mann wurde, stark und abgehärtet und ein echter Draufgänger.

Dienstag, 21. November 2023

2. 2. Fóstursonurinn – Der Ziehsohn (88 - 91)

88) Hann gekk langtum betur búinn en nokkur annar á heimilinu, og hann lék sér allan daginn og kunni sér ekki læti af gleði yfir lífinu.
Es ging ihm viel besser als allen anderen im Haus, er spielte den ganzen Tag und wußte sich vor Freude über das Leben nicht zu fassen.

89) Áður var hann orðinn hverjum manni fremri í því að stökkva á stöng.
Schon früher war er jedem Mann darin überlegen gewesen, mit einem Stab zu springen.

90) Nú eignaðist hann nýja stöng, miklu betri en hann hafði haft áður, og eftir því, sem hann varð þróttmeiri og vöðvastæltari, gerði hann lengri og fegurri stökk, svo mikil og aðdáanleg, að enginn vissi slíks dæmi.
Nun hatte er neue Stangen, viel bessere als früher, und nachdem er kräftiger und muskulöser und abgehärteter geworden war, machte er längere und schönere Sprünge, so weit und bewundernswert, wie es noch keiner gesehen hatte.

91) En nú tók hann einnig að leggja stund á fleiri íþróttir.
Und nun beschäftigte er sich außerdem mit mehreren Sportarten.

Samstag, 18. November 2023

2. 2. Fóstursonurinn – Der Ziehsohn (87)

87) Hann blés í sundur að vexti og afli, því að nú var ekki við hann dreginn maturinn.
Er wuchs gewaltig an Größe und Kraft, denn nun litt er keinen Hunger mehr.

6. 1. Ofsóttar ástir – Verfolgte Liebende (140 - 149)

140) Sigvaldi blíðalogn var einn af helstu talsmönnum þeirrar skoðunar. 141) Margir voru þeirrar skoðunar, að Hjalti væri geymdur í Dal hjá...