Donnerstag, 29. Januar 2026

5. 4. Að Hvammur og Fit – Nach Hvammur und Fit (87 - 107)

87) "Þaðan af síður veit ég það," mælti Steinn.
“Davon weiß ich nichts”, sagte Steinn.

88) "Ég skal launa þér það vel og muna þér það lengi," mælti lögmaður, "ef þú getur nú gefið mér þær upplýsingar, sem að haldi koma, eða sem aðeins leiða mig á réttan veg."
„Ich werde dich großzügig belohnen und mich noch lange an dich erinnern“, sagte der lögmaður, „wenn du mir jetzt die relevanten Informationen gibst oder mir zumindest den richtigen Weg weist.“

89) "Ég verð að verða af svo góðum hlutum," mælti Steinn.
???


90) "Ég get því miður engar upplýsingar gefið."
Ich fürchte, ich kann dir keine Auskunft geben.”

91) Svo þagði hann um stund og hugsaði sig um.
Dann schwieg er eine Weile und dachte nach.

92) "En ég kynni að geta bent á mann, sem ef til vill gæti gefið upplýsingar."
"Aber ich könnte vielleicht einen Mann nennen, der dir Auskunft geben kann."

93) Sigvaldi leit reiðulega til hans, en furðaði sig þó á því, hve Steinn var öruggur.
Sigvaldi sah ihn wütend an, war aber dennoch überrascht, wie selbstbewußt Steinn war.

94) "Hver er það?" spurði lögmaður.
“Wer ist das?” fragte der lögmaður.

95) "Það er Hallur bróðir minn."
“Das ist mein Bruder Hallur.”

96) "Hallur grámunkur!" gullu sveinarnir við.
“Hallur, der Franziskanermönch!” riefen die Knappen.

97) Það skein í tennurnar á Steini, og glottið á honum var eins og á grimmum skógarapa.
Steinns Zähne blitzten, und sein Grinsen glich dem eines wilden Dschungelaffen.

98) "Hvers vegna heldurðu, að hann geti gefið upplýsingar?" spurði lögmaður.
“Warum denkst du, daß er Auskunft geben kann?” fragte der lögmaður.

99) "Hann er skriftafaðir Önnu systur þinnar."
“Er ist der Beichtvater deiner Schwester Anna.”

100) "Skriftafaðir!" át lögmaður eftir.
“Beichtvater!” wiederholte der lögmaður.

101) "Hefir hún enn þá pápiskan skriftaföður?"
“Hat sie noch einen papistischen Beichtvater?”

102) "Hann segir það sjálfur."
“Er sagt es selbst.”

103) "Nú, jæja.
“Nun, jaja.

104) En hvar er Hallur bróðir þinn?"
Aber wo ist dein Bruder Hallur?”

105) "Hann var í Rútshelli síðast þegar ég vissi til."
“Soviel ich weiß, war er in Rútshellir.”

106) "Hann er þar enn," gall einhver við.
“Da ist er immer noch”, rief jemand.

107) Nú var runnið upp ljós fyrir Sigvalda.
Jetzt wurde es Sigvaldi klar.

5. 4. Að Hvammur og Fit – Nach Hvammur und Fit (69 - 86)

69) "Komdu hingað, karl minn," mælti hann, "og sestu niður hjá okkur og segðu okkur eitthvað í fréttum." „Komm her, mein Freund“, sagte er, „setz dich zu uns und erzähl uns etwas Neues.“ 70) Þeir settust allir niður og Steinn hjá þeim. Sie setzten sich alle hin, auch Steinn. 71) "Það er allt of mikil æra fyrir mig að sitja hjá slíkum mönnum," mælti hann undur auðmjúkur.
„Es ist eine viel zu große Ehre für mich, mit solchen Männern zusammenzusitzen“, sagte er in wunderbarer Bescheidenheit.

72) Þessi orð komu með svo kindarlegum málrómi og skringilegum svipbrigðum, að sveinar lögmanns veltust um af hlátri.
Diese Worte wurden in einem so schüchternen Tonfall und mit so seltsamer Miene vorgetragen, daß die Männer des lögmaður sich vor Lachen bogen.

73) Steinn lét það ekki á sig fá, en glotti sem áður.
Steinn ließ sich davon nicht beeindrucken, sondern grinste wie zuvor.

74) Sigvaldi sá það á honum, að hann var við þessari heimsókn búinn.
Sigvaldi wußte, daß dieser Besuch für ihn beendet war.

75) "Æran er ekki mikil," mælti lögmaður.
„Die Ehre ist nicht groß“, sagte der lögmaður.

76) "Við erum menn allir saman, þó að guð kunni að hafa gert einhvern ofurlítinn mun á okkur.
"Wir sind alle Menschen, auch wenn Gott vielleicht einen ganz kleinen Unterschied zwischen uns gemacht hat."

77) En þú hlýtur að vera fjölfróður, eins og aðrir dvergar.
Aber du mußt gut informiert sein, wie andere Zwerge auch.

78) Geturðu ekki sagt mér, hvar Hjalti Magnússon er?"
“Kannst du mir nicht sagen, wo Hjalti Magnússon ist?”

79) Sigvaldi horfði hvasst á Stein, til að vita, hvernig honum yrði við þessa spurningu.
Sigvaldi sah Steinn scharf an, um zu wissen, was er mit dieser Frage bezweckte.

80) En Steinn brá ekki svip sínum hið allra minnsta.
Aber Steinn verzog keine Miene.

81) Hann hugsaði sig um svarið dálitla stund.
Er dachte eine kleine Weile nach.

82) "Hjalti Magnússon," mælti hann.
“Hjalti Magnússon”, sagte er.

83) "Er hann ekki dauður?"
“Ist er nicht tot?”

84) Andlitið varð allt að totu á orðinu: dauður.
Bei dem Wort “tot” verzog sich sein Gesicht zu einer Grimasse.

85) "Ég veit það ekki," mælti lögmaður.
“Ich weiß es nicht”, sagte der lögmaður.

86) "Þess vegna spyr ég."
“Deshalb frage ich.”

5. 4. Að Hvammur og Fit – Nach Hvammur und Fit (57 - 68)

57) Hann vildi sjá um lögmann út fyrir Stein á Fit.
Er wollte den lögmaður zu Steinn auf Fit schicken.

58) Hann vildi vera nærstaddur, ef Steinn yrði á leið lögmanns og lögmaður tæki að spyrja hann sömu spurningunum, sem hann spurði aðra um þessar mundir.
Er wollte in der Nähe sein, für den Fall, daß Steinn dem lögmaður begegnete und dieser ihm dieselben Fragen stellte, die er zu dieser Zeit auch anderen stellte.

59) Sigvaldi lét sækja sér hest og reið á stað með lögmanni.
Sigvaldi ließ ein Pferd holen und ritt mit dem lögmaður davon.

60) Þegar þeir komu út að Fit, riðu þeir einmitt fram á Stein, sem var þá eitthvað á rölti þar neðan við bæinn.
Als sie nach Fit kamen, ritten sie direkt auf Stein zu, der gerade unterhalb der Stadt spazieren ging.

61) "Þetta er skrítin skepna," mælti lögmaður og hafði ekki augun af Steini.
„Das ist ein seltsames Wesen“, sagte der lögmaður, ohne seinen Blick von Steinn abzuwenden.

62) "Það er fátækur kotungsbjálfi, allur hálfvanskapaður," mælti Sigvaldi.
„Er ist ein armer, einfältiger Tölpel, halb verkrüppelt“, sagte Sigvaldi.

63) Honum fór að verða hálfórótt.
Er begann sich etwas unwohl zu fühlen.

64) Steinn gekk á snið við þá glottandi og gaut augunum upp á stórmennin.
Steinn ging grinsend neben den wichtigen Männern her und verdrehte die Augen.

65) "Hann er dvergur," mælti lögmaður.
“Er ist ein Zwerg”, sagte der lögmaður.

66) "Dvergar eru oft margvísir.
“Zwerge sind oft gelehrt.

67) Það væri nógu gaman að tala við hann."
Es wäre sicher lustig, mit ihm zu reden.”

68) Lögmaður steig af baki og menn hans, Sigvaldi líka.
Der lögmaður stieg ab, ebenso wie seine Männer und Sigvaldi.

Sonntag, 19. Oktober 2025

5. 4. Að Hvammur og Fit – Nach Hvammur und Fit (49 - 56)

49) Hingað til er blóð ættar minnar óblandað þrælablóði, og svo skal enn verða.
Bis jetzt ist das Blut meines Geschlechts frei von Sklavenblut geblieben – und so soll es auch bleiben.
50) Ef augað hneykslar þig, þá sting það út; það boðorð er eldra en við báðir.
Wenn dich dein Auge zum Bösen verführt, dann reiß es aus; dieses Gebot ist älter als wir beide.
51) Ég þakka þér fyrir góðar viðtökur og veitingar.
Ich danke dir für den freundlichen Empfang und die Bewirtung.
52) Þetta er skilnaðarskálin; hana drekkum við í botn."
Dies ist der Abschiedsbecher – den leeren wir ganz.”
53) "Ég ætla að ríða með þér vestur yfir fljótið, því að það er vont núna.
“Ich werde mit dir nach Westen über den Fluss reiten, denn es ist im Moment gefährlich.
54) Sólbráð hefir verið til fjallanna þessa dagana."
In den letzten Tagen hat es in den Bergen eine Schneeschmelze gegeben.”
55) Lögmaður þáði það með þökkum.
Der lögmaður nahm das Angebot dankend an.
56) En Sigvalda gekk annað til, þótt hann léti það ekki uppi.
Doch Sigvaldi verfolgte andere Absichten, auch wenn er sie nicht preisgab.

Samstag, 17. Mai 2025

5. 4. Að Hvammur og Fit – Nach Hvammur und Fit (44 - 48)

44) Ég efast ekki um, að þau séu gefin af einlægum hug.
Ich bezweifle nicht, daß sie ehrliche Absichten haben.

45) En nú skuluð þið hérna undir fjöllunum sjá annan dans bráðum.
Aber nun werdet ihr hier unter den Bergen bald einen anderen Tanz sehen.

46) Páll Vigfússon lögmaður er þeirrar ættar, sem stælist við andbyrinn.
Der lögmaður Páll Vigfússon stammt aus den Geschlechtern, die durch Gegenwind abgehärtet werden.

47) Þið viljið ekki segja mér, hvar Hjalti er.
Ihr wollt mir nicht sagen, wo Hjalti ist.

48) Nú jæja, ég skal finna hann sjálfur.
Nun ja, ich werde ihn schon selbst finden.

Sonntag, 11. Mai 2025

5. 4. Að Hvammur og Fit – Nach Hvammur und Fit (37 - 43)

37) "Já, ég ynni það verk að láta lýðinn kúga mig og uppskera svo fyrirlitningu hans að launum!"
“Ja, ich werde vor dem Volk einknicken und zur Belohnung seine Verachtung ernten!”

38) "Að æsa fjöldann gegn sér er að blása mót bálviðri.
“Die Leute gegen sich aufzubringen, heißt, das Feuer anzufachen.

39) Þegar fjöldinn rís upp og fylgist að, hefir hann fleygt meiri mönnum úr söðli en þú ert.
Wenn das Volk sich erhebt und Zustimmung findet, hat er mehr Menschen aus dem Sattel geworfen als du.”

40) Hjalti er barn fjöldans, og nú er hann orðinn óskabarn hans.
Hjalti ist ein Kind aus dem Volk, und nun ist er dessen Lieblingskind geworden.

41) Að mægjast við Hjalta er að tengjast fjöldanum blóðböndum."
Sich mit Hjalti zu verschwägern, heißt, mit dem Volk Blutsbande zu knüpfen.”

42) Lögmaður stóð upp og bjó sig til brottferðar.
Der lögmaður stand auf und machte sich zum Aufbruch bereit.

43) "Ég þakka þér fyrir ráð þín.
“Ich danke dir für deinen Rat.

Samstag, 3. Mai 2025

5. 4. Að Hvammur og Fit – Nach Hvammur und Fit (34 - 36)

34) "Hjalti er afbragð annarra manna að atgervi og hæfileikum, en hann er lítillar ættar og félaus.
“Hjalti ist anderen Männern an Fähigkeiten und Talent überlegen, auch wenn er von geringer Herkunft ist und wenig Geld hat.
35) Ef þú nú samþykktir ráðahag hans og Önnu, gerðir hann að mági þínum og efldir hann að fé, mundi þér verða meiri styrkur að honum en nokkrum öðrum manni, og þá ynnirðu líka það verk, sem lengi mundi bera lof þitt meðal komandi kynslóða."
Wenn du seiner Heirat mit Anna zustimmst, ihn zu deinem Schwager machst und ihm mit Geld hilfst, wäre er dir eine größere Stütze als andere Männer, und dann wirst du auch die Arbeit vollenden, die dir noch unter den nächsten Generationen Ruhm einbringen wird.”
36) Lögmaður hló gremjulega.
Der lögmaður lachte grimmig.

6. 1. Ofsóttar ástir – Verfolgte Liebende (140 - 149)

140) Sigvaldi blíðalogn var einn af helstu talsmönnum þeirrar skoðunar. 141) Margir voru þeirrar skoðunar, að Hjalti væri geymdur í Dal hjá...