Samstag, 13. Juli 2024

3. 2. Heimsókn bróðurins – Der Besuch des Bruders (141 - 143)

141) Ég veit það eitt, að oft fæða hraustar og fríðar almúgastúlkur höfðingjunum fegri og efnilegri börn en konur þeirra geta fætt, stúlkur, sem lagðar eru í sæng þeirra, á yfirreiðum, mér liggur við að segja: ránsferðum - þeirra, saklausar, óspilltar stúlkur, teknar grátandi, oft nauðugar, en gefa svo afkvæminu líf sitt og blóma, leysa það með heilsu sinni frá eymd og spillingu föðurins, næra og glæða það góða, sem það kann að hafa erft, og verja öllu lífi sínu í fátækt og fyrirlitningu til að halda þessu verki áfram.
Ich weiß das eine, daß oft gesunde und schöne einfache Mädchen den Häuptlingen schönere und intelligentere Kinder gebären, als es den Ehefrauen gelingt, Mädchen, die in ihre Betten gelegt wurden, á yfirreiðum (???), und mir bleibt zu sagen: Sie rauben unschuldige, unverdorbene, weinende Mädchen, oft mit Gewalt, und die geben dem Nachwuchs ihr Leben und ihre Blüte, lösen ihn mit gesundem Sinn von dem Elend und den Sünden ihrer Väter, nähren und beleben das Gute, das er geerbt haben kann, und verbringen ihr ganzes Leben in Armut und Verachtung damit, dieses Werk voranzubringen.

142) Hver veit nema Hjalti sé þannig til kominn?
Wer weiß außer Hjalti, woher er kommt?

143) Hann er ekki fæddur af höfðingja-konu, svo mikið er víst.
Er ist nicht von einer Häuptlingsfrau geboren, soviel ist sicher.

Sonntag, 7. Juli 2024

3. 2. Heimsókn bróðurins – Der Besuch des Bruders (128 - 140)

128) Annars hefir hann alla –alla kosti, sem mann mega prýða, fram yfir ykkur, höfðingjana og höfðingjasynina."
Sonst hat er alles – alle Vorzüge, die einen Mann schmücken können, er übertrifft euch bei weitem, Häuptlinge und Häuptlingssöhne.”

129) "Ættgöfgina - auðvitað - líka!"
“Den Adel – natürlich – auch!”

130) "Ættgöfgina, ha-ha-ha!
“Den Adel, hahaha!

131) Ættgöfgina, ja, ég held það geti vel verið.
Der Adel, ja, das finde ich am wichtigsten!

132) Hver veit, hvar öll börn höfðingjanna eru niður komin?
Wer weiß, wo all die Kinder der Häuptlinge geboren sind?

133) Hjalti gæti vel verið sonur hirðstjóra, biskups, lögmanns eða stórbónda.
Hjalti könnte der Sohn eines hirðstjóra, Bischofs, Anwalts oder Großbauern sein.

134) Hann gæti verið prins.
Er könnte ein Prinz sein.

135) Ég veit ekkert hverrar ættar hann er.
Ich weiß nicht, aus welcher Familie er stammt.

136) Hann er ekki fæddur í hjónabandi.
Er ist nicht im Bund der Ehe geboren.

137) Faðir hans, sem kallaður var, drukknaði við Vestmannaeyjar sama árið og hann fæddist.
Sein Vater, der so genannt wurde, ertrank in dem gleichen Jahr, in dem er geboren wurde, vor Vestmanneyjar.

138) Móðir hans varð úti frá Eyvindarhólum.
Seine Mutter war aus Eyvindarhólar.

139) Ertu nokkru nær um ættina?
Bist du ein naher Verwandter?

140) Ég er það ekki.
Ich bin es nicht.

3. 2. Heimsókn bróðurins – Der Besuch des Bruders (126 - 127)

126) Hann vantar fé, þetta auðvirðilega safn af alls konar munum, sem ekki má án dauðum og lifandi, vera að vísu, en engan mann gerir sælan.
Ihm fehlt Geld, diese verachtenswerte Sammlung von allerlei Besitz, tot und lebendig, ohne die ein Mann nicht glücklich sein kann.

127) Og þessa auradyngju ætla ég að leggja félagsbúi okkar til.
Und deshalb will ich unseren Gemeinschaftshof mit ihm teilen.

3. 2. Heimsókn bróðurins – Der Besuch des Bruders (114 - 125)

114) "Og það kannske líka, að þú ert orðin skammarflekkur á ætt minni!"
“Und vielleicht auch, daß du ein Schandfleck für meine Familie bist!”

115) Anna beit á vörina.
Anna biß sich auf die Lippen.

116) "Það er þér að kenna, ef svo er.
“Das würde ich zugeben, wenn es so wäre.

117) Leyfðu mér að giftast Hjalta og gera börnin arfgeng.
Laß mich Hjalti heiraten und die Kinder ehelich machen.

118) Þá er allt gott!"
Dann ist alles gut!”

119) "Aldrei, aldrei að eilífu!"
“Nie, nie!”

120) "Hjalti hefir alla kosti umfram þessa menn, sem þú hefir boðið mér fyrir biðla.
“Hjalti ist diesen Männern, denen du befohlen hast, um mich anzuhalten, haushoch überlegen.”

121) Hann er fegri en þeir, hraustari og karlmannlegri, gáfaðri og tryggari.
Er ist schöner als sie, gesünder und männlicher, klüger und loyaler.

122) Í einu orði sagt:
Mit einem Wort:

123) Hann er betur af guði gefinn bæði til sálar og líkama.
Ihm wurde von Gott mehr gegeben, sowohl an Leib als auch an Seele.

124) Og hann er óspilltur.
Und er ist unverdorben.

125) Hann hefir alla kosti fram yfir þá – nema einn.
Er hat ihnen alles voraus – nur eins nicht.

3. 2. Heimsókn bróðurins – Der Besuch des Bruders (112 - 113)

112) Ertu viss um, nema ég hefði orðið þér þung í skut, hefðir þú færst undan að sinna málum mínum?
Bist du dessen sicher, daß du, wenn ich dir nichts gesagt hätte, darum herumgekommen wärst, dich um meine Angelegenheiten zu kümmern?

113) Þakka máttu guði, að ég ræð mér sjálf til þessa dags."
Du mußt Gott danken, daß ich bisher allein zurechtgekommen bin.”

Freitag, 5. Juli 2024

3. 2. Heimsókn bróðurins – Der Besuch des Bruders (95 - 111)

95) Ég átti með mágsemdinni að styrkja þig, bróður minn, sýslumanninn á Hlíðarenda, svo að þú gætir því öruggari dregið undir þig fé – draga undan fé með réttu og röngu, farið með ránum, vígaferlum, jafnvel níðingsverkum, eins og feður okkar hafa gert í marga liði – ha-ha-ha-ha-hæ!
Mit der Wahl eines Ehemannes sollte ich dich stärken, meinen Bruder, den sýslumaður in Hlíðarendi, damit du ungestraft Geld unterschlagen kannst, damit du mit Raub davonkommst, mit Blutrache und anderen Schandtaten, wie sie unser Vater reichlich begangen hat – hahahahahe!”

96) Vegleg staða að vera systir sýslumannsins á Hlíðarenda!"
Eine komfortable Lage, die Schwester des syslumaður von Hlíðarendi zu sein!”

97) Páll var dökkur í framan af reiði, en stillti sig.
Páll war dunkelrot vor Zorn, aber er beherrschte sich.

98) "Láttu feður okkar liggja ósvívirta í gröfum sínum."
“Laß unseren Vater ungestört in seinem Grab liegen.”

99) "Ég hefi einurð á að segja satt um feður mína."
“Ich bin entschlossen, die Wahrheit über meine Eltern zu sagen.”

100) "Þeir mundu bylta sér í gröfum sínum, ef þeir vissu um frillulifnað þinn."
“Sie würden sich im Grab umdrehen, wenn sie von deinem unzüchtigen Lebenswandel wüßten!”

101) "Látum þá bylta sér!
“Sollen sie doch!

102) Þeir sjá þá ekki nema það, að einn kvenmaður í ættinni hefir dug til að drýgja syndir þeirra sjálfra.
Sie sehen ja nicht, daß eine Frau in der Familie dazu fähig ist, ihre Sünden selbst zu begehen.”

103) En víkjum aftur að mægðunum, sem ég átti að afla þér.
Wir kommen später auf den Schwager zurück, den ich dir verschaffen sollte.

104) Hvernig hefði farið, hefði ég tekið einhverjum af þessum fagurbúnu, hálfútlifuðu ræflum, sem þér þóknaðist að senda heim til mín með bónorð?
Wie wäre es gegangen, wenn ich einen von diesen schönen Höfen genommen hätte, einen verlebten Schlappschwanz, den du mit einem Heiratsantrag zu mir schicken wolltest?”

105) Þú þekkir skapið mitt, Páll..."
Du kennst mein Temperament, Páll …”

106) "Hann hefði tamið þig."
“Er hätte dich schon gezähmt.”

107) "Nei, Páll.
“Nein, Páll.

108) Til þess er ég of skyld Hólmfríði ríku í Dal.
Dazu bin ich zu sehr mit Hólmfríður der Reichen in Dalur verwandt.

109) Það hefði enginn karlmaður orðið öfundsverður af því að temja mig.
Kein Mann würde um die Aufgabe beneidet werden, mich zu zähmen.

110) Og ertu þá viss um, nema ég hefði aflað þér óvinar með mágsemdinni?
Und bist du sicher, daß ich dir mit der Wahl meines Gatten nicht sogar Feinde schaffen würde?

111) Það gengur ekki ætíð þrætulaust að skilja hjón á þessu landi.
Es geht nicht immer ohne Streit ab, in diesem Land eine Ehe zu scheiden.

Donnerstag, 4. Juli 2024

3. 2. Heimsókn bróðurins – Der Besuch des Bruders (82 - 94)

82) Þeir gátu lagt til búsins tvo þriðjunga á móti mér, og sumir miklu meira.
Ihre Güter waren zwei Drittel größer als meins, und einige noch viel größer.

83) Þeir voru af þessum svokölluðu góðu ættum, sumir meira að segja frændur mínir.
Sie waren aus diesen sogenannten guten Familien, einige sogar Verwandte von mir.

84) En hvernig voru þeir að öðru leyti?
Aber wie waren sie sonst?

85) Enginn þeirra var óspilltur maður.
Keiner von ihnen war ein unverdorbener Mann.

86) Enginn þeirra hafði neitt að bjóða mér, sem hann hafði ekki gefið mörgum öðrum stúlkum áður.
Keiner von ihnen hatte mir etwas zu bieten, das er nicht schon vielen anderen Mädchen zuvor gegeben hatte.

87) Enginn þeirra átti blíðuorð til að hvísla í eyrað á mér, sem hann hafði ekki áður eytt í eyrað á annarri stúlku, kannske einhverri sótugri eldabusku.
Keiner von ihnen hatte mir zärtliche Worte zuzuflüstern, die er nicht zuvor schon einem anderen Mädchen gesagt hatte, vielleicht einer rußgeschwärzten Köchin!

88) Þessa slitnu og máðu skrautgripi átti ég að hirða!"
Diese abgenutzen, blassen Schmuckstücke mußte ich putzen!” (???)

89) "Þú hafðir skyldur gagnvart ætt þinni.
“Du bist deiner Familie etwas schuldig.

90) Þú varst skyldug til að hefja sóma hennar, vald hennar og vegsemd – með giftingunni og halda við auði hennar ...”
Du bist es ihr schuldig, ihr Ehre zu machen, mit der Heirat ihre Macht und ihren Ruhm zu vergrößern und ihren Reichtum zu erhalten …”

91) "Það er að segja, því sem eftir var af honum," greip Anna fram í og hló við.
“Das heißt, was von alledem noch übrig ist”, sagte Anna und lachte.

92) "Þarna kom það, sem ég beið eftir að fá að heyra!
“Da kommt es – das, was ich zu hören erwartet habe!

93) Ég átti að láta versla mér burt fyrir silfur og gull og nokkur hundruð í jörðum!
Ich sollte mich verkaufen für Silber und Gold und ein paar Hektar Land!

94) Ég átti að styrkja vald þitt og afl á alþingi, með því að útvega þér einn mág!
Ich sollte deine Macht stärken und deinen Einfluß auf dem Althing, dadurch, daß ich dir einen Schwager verschaffe!

6. 1. Ofsóttar ástir – Verfolgte Liebende (101 - 110)

101) Hann spurði eftir honum á hverju manntalsþingi, sem hann hélt undir fjöllunum, en fékk aldrei neitt svar. 102) Hann sendi njósnarmenn ...