Donnerstag, 5. März 2026

5. 6. Erfiðleikar lögmannsins – Die Schwierigkeiten des lögmaður (22 - 30)

22) Þó að hann hefði ekkert gert annað þessa þrjá eða fjóra síðustu dagana en drepa menn, þá hefði hann ekki komist yfir nándar nærri alla, sem höfðu móðgað hann, og þaðan af síður grafið fyrir ræturnar á allri óvildinni.
Selbst wenn er in den letzten drei oder vier Tagen nichts anderes getan hätte, als Menschen zu töten, hätte er nicht annähernd alle überwältigt, die ihn beleidigt hatten, und schon gar nicht das Übel mit der Wurzel ausgerottet.

23) Hann gat að vísu rekið harma sinna á einum og einum manni, þeim, sem mest höfðu gengið í berhögg við hann, og drepið þá, til dæmis munkinn, en við það var lítið unnið.
Er hätte sich natürlich an dem einen oder anderen rächen können, an denen, die sich ihm ganz offen widersetzt hatten, und sie töten können, zum Beispiel den Mönch, aber das hätte wenig gebracht.

24) Það mundi ekki skjóta hinum þann skelk í bringu, sem hann vildi og þyrfti á að halda.
Es würde den Leuten nicht den Schrecken einjagen, der nötig war.

25) En það mundi hleypa óvildinni gegn honum í bál og brand, og þá fengi hann líka háyfirvöldin í landinu til að kljást við.
Aber das hätte die Feindseligkeit gegen ihn noch weiter geschürt, und dann hätte er sich auch noch mit den hohen Behörden des Landes anlegen müssen.

26) Það lá við, að þessar hugsanir mundu verða honum þyngri en svo, að hann gæti borið þær.
Es war fast so, als würden diese Gedanken für ihn zu schwer werden, um sie zu ertragen.

27) Skömmin og fyrirlitningin, sem hann hafði mætt, svall honum í skapi.
Die Scham und Verachtung, die ihm entgegengeschlugen, kühlten sein Temperament ab.

28) En gremja hans var máttvana.
Aber seine Wut war machtlos.

29) Hann var sem bundinn á höndum og fótum og gat ekki hreyft sig til hefndarinnar.
Er war wie gelähmt und konnte sich nicht bewegen, um Rache zu nehmen.

30) Eftir nokkra umhugsun ákvað hann að reyna eina að ferðina enn til að ná takmarki sínu.
Nach einiger Überlegung beschloß er, einen weiteren Versuch zu unternehmen, um sein Ziel zu erreichen.

Keine Kommentare:

Kommentar veröffentlichen

5. 6. Erfiðleikar lögmannsins – Die Schwierigkeiten des lögmaður (22 - 30)

22) Þó að hann hefði ekkert gert annað þessa þrjá eða fjóra síðustu dagana en drepa menn, þá hefði hann ekki komist yfir nándar nærri alla, ...