Sonntag, 22. März 2026

5. 6. Erfiðleikar lögmannsins – Die Schwierigkeiten des lögmaður (117 - 126)

117) Ég hefi brotist upp úr fátæktinni og sjálfur komið mér fram að mestu, og nú er ég lögmaður yfir hálfu landinu.
Ich habe es geschafft, der Armut zu entkommen und meinen Weg fast allein zu machen, und heute bin ich lögmaður des halben Landes.

118) Það, sem ég á til, hefi ég dregið saman með súrum sveita og þungum áhyggjum.
Was ich habe, habe ich unter bitterem Kummer und schweren Sorgen erkämpft.

119) Heldurðu, að mér standi á sama, hvað um það verður eftir minn dag?
Glaubst du etwa, es wäre mir egal, wie es nach meinem Tod weitergeht?

120) Nei, það á að ganga til þeirra, sem halda minningu minni í heiðri og færir eru um að hefja ættina okkar til nýrrar vegsemdar."
Nein, wir sollten uns an diejenigen wenden, die mein Andenken in Ehren halten und in der Lage sind, unserer Familie zu neuem Ruhm zu verhelfen.“

121) "Börn Hjalta eru vel til þess fallin."
„Hjaltis Kinder sind dafür bestens geeignet.“

122) "Smalabörnin þín fá engan eyri af mínum eigum," mælti lögmaður nokkuð harðlega.
„Die Kinder eines Schäfers bekommen keine Öre von meinem Besitz“, sagte der lögmaður etwas härter.

123) Síðan bætti hann við í mildum bænarrómi:
Dann fügte er in sanftem, andächtigem Ton hinzu:

124) "Það er í fyrsta - og skal verða í síðasta - skiptið, sem ég bið þig vel; gerðu nú þetta að vilja mínum.
„Es ist das erste Mal – und auch das letzte –, daß ich dich um etwas bitte; tu nun, was ich will.“

125) Skildu við þennan Hjalta og taktu þeim manni, sem ég vil, að þú eigir."
Schlag dir diesen Hjalti aus dem Kopf und nimm den Mann, den ich dir zugedacht habe.“

126) "Við skulum ekki tala fleira um þetta," mælti Anna.
„Wir sollten nicht mehr darüber reden“, sagte Anna.

Keine Kommentare:

Kommentar veröffentlichen

5. 6. Erfiðleikar lögmannsins – Die Schwierigkeiten des lögmaður (117 - 126)

117) Ég hefi brotist upp úr fátæktinni og sjálfur komið mér fram að mestu, og nú er ég lögmaður yfir hálfu landinu . Ich habe es geschafft,...