160) Þá var það allt annar maður.
161) Og loks var til saga um það, að Hjalti hefði eitt sinn riðið í flasið á þeim tólf saman.
162) Hann hefði þá ekki linnt á sprettinum, en riðið beint á þá með atgeirinn fram undan sér, riðið tvo af þeim af baki og þotið gegnum fylking þeirra eins og hvirfilvindur.
163) Þegar þeir hefðu farið að elta hann, hefði brátt dregið í sundur, og loks hefði hann horfið þeim.
164) Hjalti var orðinn eins konar fósturbarn sveitarinnar, gælubarn, sem var alls staðar og hvergi, og ímyndun manna óf um hann undarlegan töfrabúning, nokkurs konar huliðshjálm.
165) Hann var sveitinni til metnaðar, því að engin af nágrannasveitunum átti annan eins kjörson.
166) Eiginlega voru það aðeins Fljótshlíðingar, sem eftir honum sóttu, og þá skyldi hundur mega heita í höfuð Eyfellinga, ef þeir reyndu ekki til þess ýtrasta að halda manni fyrir Fljótshlíðingum.
167) Að vísu voru til menn undir fjöllunum, sem vinátta og verðlaun lögmanns freistuðu, en fyrst og fremst var það ekkert smáræðis handarvik að ná Hjalta lifandi og færa hann til lögmanns, en hitt var þó engu síður ísjárvert, að baka sér óþokka allra sveitunga sinna og hefnd Önnu á Stóruborg, því að hana átti hver maður vísa, sem sviki Hjalta og segði til hans.
168) Og þó að allur almenningur væði í villu og svíma um það, hvar Hjalti væri, voru til menn undir fjöllunum, sem ekki voru svo skyni skroppnir að skilja það ekki, að Hjalti hlaut að vera einhvers staðar í nánd við Fit, úr því að Steinn geymdi hestinn hans.
169) Því að þeir lögðu ekki minnsta trúnað á það, að Steinn ætti þennan hest og Hjalti væri á allt öðrum hesti, þegar hann væri á ferð. En þeir þögðu um skoðun sína og héldu öðrum í villunni.
160) Damals war er ein anderer Mann.
161) Und schließlich gab es eine Geschichte, wonach Hjalti einst eine ganze Gruppe von zwölf Männern angegriffen hatte.
162) Er hätte damals sein Tempo nicht verlangsamt, sondern wäre mit vor sich ausgestrecktem Speer geradewegs auf sie zugeritten, hätte zwei von ihnen von ihren Pferden gestoßen und wäre wie ein Wirbelwind durch ihre Reihen gefegt.
163) Als sie sich auf die Verfolgung gemacht hätten, hätte sich die Lücke bald aufgetan, und schließlich wäre er ihnen aus den Augen verschwunden.
164) Hjalti war zu einer Art Ziehkind des Landkreises geworden, zu einem Liebling, der überall und nirgends war, und die Phantasie der Menschen webte um ihn ein wundersames, magisches Gewand, eine Art unsichtbaren Helm.
165) Er war eine Quelle des Stolzes für die Gemeinschaft, denn keine der benachbarten Gemeinschaften hatte einen anderen Sohn wie ihn.
166) In Wahrheit waren es nur die Fljótshlíðingar, die ihn verfolgten, und da hätte man genauso gut einen Hund als Eyfirðing bezeichnen können, so wenig taten die Eyfirðingar ihr Möglichstes, um einen Mann vor den Fljótshlíðingar zu schützen.
167) Zugegebenermaßen gab es Männer in den Bergen, die von der Freundschaft und den Belohnungen des Gesetzeshüters in Versuchung geführt wurden, doch in erster Linie war es kein leichtes Unterfangen, Hjalti lebend zu fangen und ihn dem Gesetzeshüter zu übergeben; nicht weniger gefährlich war es jedoch, den Unmut all seiner Dorfgenossen und die Rache von Anna von Stóruborg auf sich zu ziehen, denn jeder Mann, der Hjalti verriet und auslieferte, mußte damit rechnen, dies zu erleiden.
168) Und obwohl die breite Öffentlichkeit verwirrt und ratlos darüber war, wo sich Hjalti aufhielt, gab es Männer in den Bergen, die nicht so begriffsstutzig waren, daß sie nicht begriffen, daß Hjalti irgendwo in der Nähe von Fit sein mußte, da Steinn sein Pferd hütete.
169) Denn sie glaubten keinen Moment lang, daß Steinn dieses Pferd besaß und daß Hjalti auf einem ganz anderen ritt, als er unterwegs war.
Abonnieren
Kommentare zum Post (Atom)
6. 2. Hellisbúinn - ? (11- 20)
11) Og honum leiddist aldrei þögnin. 12) Hann hafði verið allra manna fegurst eygður og var það enn. 13) En augu hans voru harla ólík þv...
-
1) Anna var yfir þrítugt, en Hjalti fimmtán ára . Anna war über dreißig, und Hjalti war fünfzehn.
-
41) Ekki var það þá jafnkunnugt orðið og nú er, hvernig hann var að þeirri sæmd kominn. Er war damals noch nicht so bekannt und verehrt, w...
-
Quelle: https://www.snerpa.is/net/roman/anna.htm Romeo und Julia im hohen Norden - die Liebesgeschichte der reichen isländischen Gutsbesit...
Keine Kommentare:
Kommentar veröffentlichen